AUGLÝSINGAGERÐ

Auglýsinga­myndbönd fyrir fyrirtæki.

Við vinnum auglýsingamyndbönd með fyrirtækjum og vörumerkjum. Saman ákveðum við skilaboðin og hvar efnið á að birtast, síðan sjáum við um undirbúning, tökur og eftirvinnslu.

VALIN VERKEFNI

Myndefni sem fær athygli.

Úrval auglýsinga- og vörumerkjaverkefna frá ONE SHOT.

Vöru- og auglýsingamyndir

HVAÐ VIÐ GERUM

Frá hugmynd að afhendingu.

01

Auglýsingamyndbönd

Við mótum sögu og tökuáætlun út frá því sem þú vilt kynna. Síðan tökum við upp, klippum og vinnum mynd og hljóð fyrir birtingu.

02

Vöruljósmyndun og auglýsingamyndir

Myndefni fyrir vörumerki, fyrirtæki og herferðir þar sem útlit, tónn og heildarmynd þurfa að haldast í takt.

03

Myndefni fyrir samfélagsmiðla

Við getum unnið láréttar og lóðréttar útgáfur úr sama myndefni fyrir vef, samfélagsmiðla og stafrænar herferðir.

FERLIÐ

Svona vinnum við verkefnið saman.

01

Hugmynd

Við byrjum á markmiðinu, áhorfandanum og þeirri tilfinningu sem efnið á að skilja eftir.

02

Undirbúningur

Við veljum staðsetningu, gerum tökuáætlun og förum yfir hvað þarf að vera tilbúið fyrir tökudaginn.

03

Tökur

Við vinnum með lýsingu, myndavél og hljóð út frá tökuáætluninni og nýtum hugmyndir sem verða til á staðnum.

04

Eftirvinnsla

Klipping, litavinnsla, hljóð og frágangur eru unnin sem ein heild þar til efnið er tilbúið til birtingar.

RÆÐUM VERKEFNIÐ

Byrjum á hugmyndinni.

Bókaðu stuttan fund og segðu okkur frá verkefninu. Við förum yfir hugmyndina, umfangið og næstu skref.

30 mínútna myndfundur

Spurningar? Hringdu í Questions? Call +354 698 8898

Opna bókun beint á Cal.com ↗

Spurningar um auglýsingagerð

Auglýsingamyndband fyrir fyrirtæki — hvar byrja ég?

Byrjaðu á því að segja hvað á að kynna, hverjum efnið er ætlað og hvar það á að birtast. Það getur verið kynningarmyndband fyrir fyrirtæki, vöru eða þjónustu, eða stutt auglýsing fyrir samfélagsmiðla. Bókaðu samtal til að ræða hugmyndina og næstu skref.

Hvað kostar myndbandsgerð eða auglýsingagerð?

Umfangið ræður verðinu: undirbúningur, tökustaðir, tökutími, fjöldi útgáfa og eftirvinnsla. Sendu stutta lýsingu, áætlaðan birtingardag og fjárhagsramma ef hann liggur fyrir. Taktu fram hvort handrit, talsetning, leikarar eða sérstakur búnaður komi til greina, svo hægt sé að meta verkefnið og gera tilboð.

Vöruljósmyndun og auglýsingaljósmyndun

Fyrir ljósmyndir af vörum, fatnaði eða þjónustu hjálpar að vita hvar þær verða notaðar: á vefsíðu, í vefverslun, á samfélagsmiðlum eða í auglýsingu. Segðu frá fjölda vara, útliti sem þú ert að leita að og hvort þú þarft bæði ljósmyndir og myndband. Skoðaðu dæmi um verkefni og sendu okkur þína hugmynd.

Myndefni fyrir Instagram, Reels og aðra samfélagsmiðla

Lóðrétt, ferkantað og lárétt myndefni nýtist á mismunandi stöðum. Ákveðið hlutföll og lengd áður en tekið er upp, svo mikilvægt efni lendi ekki utan myndrammans við skurð. Taktu líka fram hvort þörf sé á textun, texta á skjá eða fleiri en einni útgáfu.

Klipping, litavinnsla og önnur eftirvinnsla

Við skipulagningu myndbands þarf að ákveða hvað afhendingin á að innihalda: klippingu, litavinnslu, tónlist, merki og útgáfur fyrir mismunandi miðla. Ef þú ert þegar með myndefni og þarft myndvinnslu eða eftirvinnslu skaltu senda lýsingu á efninu, umfangi þess og fyrirhugaðri notkun. Þá getum við metið hvað hentar.

Questions about commercial production

Where do I start with a video for my business?

Tell us what you want to promote, who the audience is and where the content will appear. This might be a company introduction, product or service video, or a short social-media ad. Book a call to discuss the idea and next steps.

What does commercial video production cost?

Pricing depends on preparation, locations, shooting time, versions and post-production. Send a short brief, planned publication date and budget range if available. Mention any script, voice-over, actors or specialist equipment being considered so the scope can be assessed and quoted.

Product and advertising photography

For products, clothing or services, tell us where the images will be used: a website, online shop, social media or advertising. Include the number of products, the look you have in mind and whether you need both photos and video. Browse project examples and send us your idea.

Content for Instagram, Reels and social media

Vertical, square and landscape formats serve different placements. Agree on aspect ratios and length before filming so important details are not lost when cropping. Also mention captions, on-screen text and any additional versions required.

Editing, colour grading and post-production

Agree on the deliverables when planning a video: editing, colour grading, music, branding and versions for different platforms. If you already have footage or photographs requiring editing, describe the material, its quantity and intended use so we can assess the work.