Bóka tíma
Veldu þjónustu og lausan tíma sem hentar. Þú færð yfirsýn yfir verð og hvað er innifalið áður en þú bókar.
EN

ONE SHOT / FASTEIGNALJÓSMYNDUN
Inni- og útimyndir af íbúðum og sérbýlum fyrir fasteignaauglýsingar. Við vinnum myndirnar fyrir birtingu og bjóðum einnig drónamyndir og fasteignamyndbönd eftir vali.
Fyrir fasteignasala og eigendur sem selja sjálfir. Ljósmyndir eru afhentar samdægurs. Við tökum verkefni á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar eftir samkomulagi.
EINFALT FERLI
Skýrt ferli frá fyrsta smelli þar til fullunnar myndir eru tilbúnar.
Veldu þjónustu og lausan tíma sem hentar. Þú færð yfirsýn yfir verð og hvað er innifalið áður en þú bókar.
Við myndum eignina að innan og utan eftir því sem við á. Að jafnaði færðu 20–30 fullunnar myndir af íbúð og 30–40 af sérbýli.
Þú færð ljósmyndirnar samdægurs með WeTransfer-hlekk í tölvupósti, óháð staðsetningu eignarinnar. Þaðan geturðu sótt myndirnar.
VERÐSKRÁ
Ljósmyndir afhentar samdægurs. Sjá nánar um afhendingu og bókun í bókunarskilmálum.
Verð miðast við eina íbúðar- eða sölueiningu að 300 m². Sérbýli eru einbýlishús, raðhús og parhús. Tilboð eru gerð í stærri eignir og umfangsmiklar aukabyggingar.
Myndbönd innihalda klippingu, litavinnslu, tónlist með viðeigandi notkunarleyfi og merki fasteignasölu. Ein umferð minniháttar breytinga er innifalin. Afhent er lárétt útgáfa; drónamyndskeið og sérstakar samfélagsmiðlaútgáfur eru verðlögð sérstaklega.
Þegar dróni hentar betur til að sýna framhlið eignarinnar má óska eftir 2–3 framhliðarmyndum með dróna í stað hefðbundinna útimynda, án aukagjalds í þjónustu sem inniheldur útimyndir.
Þetta hentar sérstaklega þegar þröngt er um bygginguna. Sérstaka drónaviðbótin gefur síðan víðari yfirsýn yfir lóð og nærumhverfi.
Allar drónatökur eru háðar veðri og heimildum á staðnum.
Magnverð gildir fyrir tómar íbúðir í sömu byggingu, myndaðar í einni samfelldri heimsókn.
Fyrsta íbúð kostar 24.900 kr., önnur og þriðja 19.900 kr. hvor og fjórða til sjötta 17.900 kr. hver.
Innifalin er ljósmyndun og vinnsla fyrir hverja íbúð ásamt sameiginlegu útimyndasafni af byggingunni. Myndafjöldi tekur mið af stærð og skipulagi.
Magnverð miðast við íbúðir að 150 m² hver, tilbúnar og aðgengilegar við komu. Stærri einingar eru verðlagðar sérstaklega. Sameiginlegt drónasafn er aðeins rukkað einu sinni fyrir bygginguna.
Grunnverð gildir í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Reykjavík að undanskildu Kjalarnesi og í þéttbýli Mosfellsbæjar. Ferðagjöld hér að neðan bætast við valda þjónustu og innifela ferð fram og til baka frá Hafnarfirði.
Verð miðast við þéttbýlisstaðina sem eru nefndir. Kjalarnes, sumarhús, sveitabæir og aðrir staðir eru verðlagðir fyrirfram.
Ferðagjald er innheimt einu sinni fyrir sameiginlega ferð á sama stað. Þegar fleiri viðskiptavinir deila ferð má skipta gjaldinu eftir samkomulagi. Akstur milli ólíkra svæða er verðlagður sérstaklega.
BÓKA
Veldu þjónustu og síðan lausan tíma í dagatalinu.
Ef bókunardagatalið birtist ekki geturðu opnað það beint hjá Cal.com.
Opna bókun↗ALLT Á EINUM STAÐ
Svör um undirbúning, afhendingu og framkvæmd tökunnar.
Því betur sem eignin er undirbúin, því meiri tíma getum við varið í það sem skiptir máli: lýsingu, sjónarhorn og framsetningu.
Undirbúningur: Best er að eignin sé eins tilbúin og hægt er fyrir tökur. Við hjálpum eftir þörfum með smávægilegar breytingar á staðnum.
Íslenskt veður getur breyst hratt. Rigning, vindur og birtuskilyrði geta haft áhrif á útimyndir og drónatökur jafnvel þó spáin hafi litið vel út þegar tíminn var bókaður.
Dróni getur gefið eign alveg nýtt samhengi, en flugið ræðst alltaf af aðstæðum, öryggi og þeim reglum sem gilda á staðnum.
Allar myndir fara í eftirvinnslu með það að markmiði að skapa náttúrulega, bjarta og faglega framsetningu eignarinnar.
Þú getur afbókað eða fært tíma án gjalds með að minnsta kosti 3 klukkustunda fyrirvara. Með styttri fyrirvara er fullt verð bókunarinnar rukkað.
Verðið fer eftir þjónustu og tegund eignar. Í verðskránni sérðu ljósmyndapakka, drónamyndir og fasteignamyndbönd. Þegar þú bókar tökur geturðu reiknað þjónustu og ferðakostnað saman. Öll verð í verðskránni eru með VSK.
Á að mynda eitt iðnaðarbil, skrifstofu, verslunarhúsnæði eða margar einingar í sömu byggingu? Sendu fyrirspurn um atvinnuhúsnæði með heimilisfangi, áætlaðri stærð, fjölda eininga og hvort óskað sé eftir innimyndum, útimyndum, drónamyndum eða myndbandi. Þá er hægt að meta umfangið og gera tilboð áður en tími er staðfestur.
Fyrir margar einingar er gagnlegt að taka fram hvaða rými eru eins, hvort hvert bil eigi að fá eigið myndasafn og hvort aðkoma, bílastæði eða hleðsludyr eigi að sjást. Ekki miða sjálfkrafa við íbúðarverð þegar umfang verkefnisins er annað.
Drónaljósmyndun getur sýnt afstöðu húss á lóð, aðkomu, nærumhverfi og útsýni sem erfitt er að ná frá jörðu. Hún nýtist sem viðbót við innimyndir og hefðbundnar útimyndir. Sérstakar loftmyndir geta líka hentað þegar kynna á atvinnuhúsnæði eða stærra svæði.
Skoðaðu muninn á stakri drónaljósmyndun og drónaviðbót með ljósmyndapakka í verðskránni. Drónatökur eru háðar veðri og heimildum á staðnum; láttu vita fyrirfram ef þær eru lykilatriði verkefnisins.
Ljósmyndir gefa yfirsýn yfir einstök rými. Fasteignamyndband getur tengt rýmin saman og sýnt flæði um eignina. Í verkefnasafninu geturðu skoðað dæmi áður en þú velur þjónustu.
Taktu fram ef þú þarft lóðrétt myndband fyrir samfélagsmiðla eða drónamyndskeið. Það er ekki sjálfkrafa sama afhending og hefðbundið fasteignamyndband; útfærslan og verðið þurfa að liggja fyrir áður en tökur hefjast.
Grunnverð miðast við höfuðborgarsvæðið. Veldu staðsetningu í ferðakostnaðarreiknivélinni við bókunina til að sjá áætlað heildarverð. Ef staðurinn er ekki á listanum eða verkefnið nær yfir margar eignir, hringdu í 698 8898 eða sendu fyrirspurn svo ferðin og umfangið séu skýr áður en bókað er.
The price depends on the service and property type. See packages and prices, then use the calculator beside booking for an estimate including travel. Listed prices include VAT.
For an industrial unit, office, retail space or several units in one building, request a quote. Include the address, approximate size, number of units and whether you need interiors, exteriors, drone photos or video. This lets us agree on the scope before confirming a time.
For multiple units, explain which layouts repeat, whether each unit needs its own image set and whether access roads, parking or loading doors should be shown. Residential package prices should not automatically be applied to a different scope of work.
Aerial photography can show a building within its plot, access, surroundings and views that are difficult to capture from the ground. It complements interior and exterior photography and can help present commercial properties or larger sites.
Compare standalone drone photography with a photography-package add-on in the price list. Drone shoots depend on weather and permissions at the location; tell us in advance if aerial images are essential.
Photos show individual rooms; a property video can connect them and show how the spaces flow. Browse our work before choosing a service.
If you need a vertical social-media version or drone footage, mention this before the shoot. These are not automatically included in a standard property video and require an agreed scope and price.
Base pricing applies in the Capital Region. Select your location in the travel calculator beside booking to see the estimated total. For a location not listed or a multi-property assignment, call +354 698 8898 or email us to agree on travel and scope first.
SPURNINGAR FYRIR TÖKUR?
Ef eitthvað sérstakt þarf að hafa í huga varðandi eignina er best að ræða það áður en tökur hefjast.
Spurningar? Hringdu í Questions? Call +354 698 8898