Þarf eignin að vera tóm fyrir fasteignaljósmyndun?
Ekki þarf að tæma heimilið. Markmiðið er að sýna rýmin skýrt með húsgögnum og látlausri uppstillingu, en hafa lausamuni og persónugögn úr augsýn. Í tómri íbúð skiptir mestu að gólf, gluggar og yfirborð séu hrein og aðgengi gott.
Hvað þarf að undirbúa fyrir myndatöku iðnaðarbils?
Tryggðu aðgang að öllum einingum sem á að mynda og hafðu tengilið tiltækan. Ryddu gönguleiðir, gakktu frá lausum verkfærum og athugaðu lýsingu. Ef aðkoma, hleðsludyr eða bílastæði skipta máli í kynningunni þarf að vera hægt að mynda þau. Taktu fram fyrirfram ef starfsemi er í húsnæðinu svo hægt sé að skipuleggja tökurnar í kringum hana.
Hvað undirbý ég fyrir drónamyndir?
Láttu vita hvaða hluta eignar og nærumhverfis á að sýna. Gakktu frá lausum hlutum á lóð og færðu bíla sem skyggja á framhlið ef það er hægt. Drónatökur eru háðar veðri og heimildum; undirbúningur einn tryggir því ekki að hægt verði að fljúga á tilteknum tíma. Sjá nánar um drónamyndir og fasteignatökur.