UM ONE SHOT

Við hugsum hvert verkefni alla leið.

ONE SHOT vinnur að auglýsingagerð og fasteignaljósmyndun með bakgrunn í kvikmyndagerð. Við mótum hugmyndina með þér, undirbúum tökurnar og vinnum myndefnið þar til það er tilbúið til birtingar.

Starfsmannamynd kemur hér

Á BAK VIÐ ONE SHOT

Manneskjan á bak við verkefnin.

Árni Magni DavíðssonKvikmyndagerðarmaður og ljósmyndari · Stofnandi ONE SHOT

Ég hef verið með myndavél í höndunum síðan ég var 13 ára. Það sem byrjaði sem stuttmyndir með vinum varð að námi, starfi og að lokum ONE SHOT.

ONE SHOT / APPROACH

Hvernig við vinnum.

01

Bakgrunnur & reynsla

Fyrirmyndin mín er Ingólfur Guðni heitinn, bróðir pabba, sem rak sína eigin auglýsingastofu. Hann átti stóran þátt í því að vekja áhuga minn á myndavélum og auglýsingagerð — áhuga sem hefur fylgt mér síðan. Ég lauk námi í kvikmyndatækni hjá Studio Sýrland. Þar lærði ég að vinna hugmynd frá undirbúningi í gegnum tökur og eftirvinnslu, og hversu miklu gott samstarf skiptir fyrir útkomuna. Síðan hef ég unnið við auglýsinga- og myndbandagerð og myndað yfir 3.000 fasteignir. Ég nýt þess sérstaklega að vinna með lýsingu, finna rétta sjónarhornið og klippa myndefni þannig að takturinn og sagan haldi athyglinni.

02

Gott samstarf byrjar á samtali.

Þú þarft ekki að mæta með fullmótaða hugmynd. Við byrjum á því að ræða hvað þú vilt sýna, hverjum þú vilt ná til og hvar efnið á að birtast. Þaðan mótum við verkefnið saman. Ég sé um tæknilegu hliðina svo þú getir einbeitt þér að því sem þú vilt koma á framfæri. Góður undirbúningur gefur okkur skýra stefnu og svigrúm til að nýta hugmyndir sem verða til á tökustað.

03

Af hverju ONE SHOT?

Ég stofnaði ONE SHOT til að byggja upp þjónustu sem ég get staðið á bak við: vandað myndefni, skýr samskipti og nægan tíma til að vinna verkið vel. Ég vil að fólk upplifi að það sé að vinna með mér og geti komið með hugmyndir, spurt spurninga og treyst því að ég leggi mig fram við verkefnið.

RÆÐUM VERKEFNIÐ

Ertu með verkefni í huga?

Segðu okkur frá því. Við förum saman yfir hugmyndina og næstu skref.

Ræðum verkefnið↗

Spurningar? Hringdu í Questions? Call +354 698 8898